ÞJÓNUSTA Í BOÐI

 Við bjóðum upp á sundlaug með heitum jarðsjó ásamt heitum potti. Frítt með allri gistingu.

Lesa meira...

Fjölskylduvænt tjaldsvæði ásamt aðstöðu fyrir húsbíla. Leiksvæði fyrir börnin.

Lesa meira...

  30 uppábúin rúm og 70 svefnpokapláss.

Lesa meira...

  Í boði eru fjölbreyttar veitingar alla daga. Tilvalið fyrir ættarmót og allskyns stærri samkomur.

Lesa meira...



LUNDUR Í ÖXARFIRÐI



Lundur er í Birkiskógi við þjóðbraut. Í næsta nágrenni eru merkir áningastaðir, svo sem Vatnajökulsþjóðgarður Jökulsárgljúfrum, Hljóðaklettar, Dettifoss, Rauðinúpur og Hraunhafnartangi. Allt sannkallaðar náttúruperlur. Ásbyrgi í 5 mínútna fjarlægð. Frábærar vel merktar gönguleiðir í nágrenninu. Ókeypis veiði í fallegum vötnum á sléttunni sem geymir líka stórbrotið fuglalíf. Falleg strandlengjan með rekaviði er einnig ómissandi. Stutt í hvalaskoðun og ferðir yfir heimskautsbaug.

Ókeypis í sundlaugina og pottinn fyrir alla okkar næturgesti.

Verið velkomin að Lundi í Öxarfirði.

Við keppumst við að gera heimsókn þína ógleymanlega.

Hafið samband í síma 696 3667 (Eyvi) eða í Lundi 465 2247, 465 2248 (sundlaug)

lundurinfo@gmail.com eða lundur@dettifoss.is


Myndir frá Lundi

map

 

 


Copyright © lundurtravel